Áttu í vandræðum með að velja gjöf sem hittir í mark hjá þínum nánustu? Hvað með að gefa ávísun á flugferð eða pakkaferð en láta viðtakandanum eftir að velja hvaða land skuli leggja undir fót?
Sláðu í gegn og gefðu utanlandsferð með gjafabréfi Icelandair. Ferðalög eru uppspretta minninga og lífsreynslu sem við búum að alla tíð.
Gjafabréfin gilda í 5 ár og þú ræður hvaða upphæð þú gefur fyrir. Viðtakandi getur svo nýtt fleiri en eitt gjafabréf í einu þegar draumaferðin liggur fyrir – hvort sem það er fótboltaferð, verslunarferð, sólarlandaferð eða borgarferð.

,Þú velur mynd, upphæð gjafabréfsins og gjaldmiðil og bætir svo við fallegum skilaboðum til þess sem fær gjafabréfið. Þegar það lítur út eins og þú vilt hafa það, geturðu lokið við kaupin.
,Smelltu á Kaupa gjafabréf Icelandair á Saga Club reikningnum þínum. Næst velurðu fjölda Vildarpunkta, svo fjölda gjafabréfa og á síðasta skjá staðfestir þú kaupin. Athugaðu að útlit og texti gjafabréfa er staðlað þegar þau eru keypt með Vildarpunktum.
,Þegar þú hefur valið flug eða pakkaferð og það kemur að því að greiða fyrir ferðina í bókunarferlinu, skaltu smella á Nota aðra greiðslumáta. Þá opnast gluggi þar sem þú getur slegið inn einn eða fleiri gjafabréfakóða. Það er ekki hægt að nota gjafabréfin eftir að búið er að bóka, heldur aðeins á meðan þú bókar.
Beðið verður um greiðslukortaupplýsingar í ferlinu sem öryggisráðstöfun, jafnvel þó að öll ferðin sé greidd með gjafabréfum. Ef gjafabréfið dugir ekki fyrir greiðslunni verður eftirstandandi upphæð gjaldfærð af greiðslukorti. Eftir að bókun lýkur færðu sendan rafrænan farmiða og kvittun í tölvupósti.
Gakktu úr skugga um að þú lesir vel yfir skilmála fyrir gjafabréf, þar sem þeir geta verið mismunandi eftir tegundum gjafabréfa.
,Gjafabréfin okkar gilda sem peningagreiðsla upp í öll flug eða pakkaferðir Icelandair.
Engar takmarkanir eru á ferðatíma eða lengd dvalar umfram reglu fargjalds hverju sinni.
Gjafabréfin gilda í fimm ár frá útgáfudegi.