Pingdom Check

Gran Canaria

Þar sem góð hótel, skemmtun og veðursæld fara saman

Gran Canaria er vinsæll áfangastaður og þar finnur þú meira en einungis afþreyingu fyrir sólþyrsta ferðamenn.

Á eyjunni eru stórbrotnar náttúruperlur, ýmsir möguleikar til að stunda hreyfingu sem kemur adrenalíninu í gang og fallegir litlir bæir þar sem tíminn stendur í stað. Gistimöguleikar eru af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum og hagstæðum íbúðahótelum yfir í fimm stjörnu lúxushótel. Icelandair VITA býður upp á gistingu á nokkrum mismunandi stöðum. Sjá nánar lista yfir hótel hér neðst á síðunni.

Afþreying

Á Gran Canaria er hægt að stunda alls kyns útivist og vatnasport. Lofthitinn er oftast yfir 20 gráður yfir vetrartímann og heitara á sumrin. Sjávarhiti er einnig frá 18-22 gráðum. Kafarar, brimbrettakappar, göngu- og hjólreiðafólk, klifrarar og ævintýrafólk almennt flykkist því til Gran Canaria.

Stærri og smærri strendur eru um allt á eyjunni, hvort sem líflegar og fjörugar henta eða rólegar og fámennar. Allar útgáfur finnast á Gran Canaria.

Auðvelt er að keyra á eigin vegum um eyjuna og upplagt að leigja bílaleigubíl ef áhugi er fyrir því.

Almenningssamgöngur eru líka fínar og hagstæð leið til að skoða sig um.

Hér er allt til alls og því allar forsendur til staðar fyrir fullkomið frí! Fararstjórar VITA eru til taks og geta aðstoðað við að bóka skoðunarferðir. Þeir geta einnig gefið upplýsingar um þjónustu og stofnanir á svæðinu.

Sjá nánar um svæðið hér neðar á síðunni. Það er meira en þú heldur á Gran Canaria!

 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Gististaðir

fráISK 138.400 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu