Pingdom Check

Bergen flugvöllur, Flesland (BGO)

Um flugvöllinn

Heimilisfang flugvallar: Bergen Airport, Flesland, P.O.Box 34, Flesland, N-5869 Bergen

Flesland flugvöllurinn er annar stærsti flugvöllurinn í Noregi. Flugvöllurinn var fullgerður árið 1955 með flugbraut sem er 2.999 metrar að lengd. Ný flugstöð var opnuð árið 1988 og nýr flugturn árið 1991. Um 3,8 milljónir farþega fara um flugvöllinn árlega og flugfélögin eru um 16. Flogið er til ýmissa áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada og Evrópu.

Icelandair á flugvellinum í Bergen

Flugstöð (terminal): Main terminal
Umboðsaðili: Wideroe Ground Handling
Innritun opnar: 2 klst. fyrir brottför
Innritun lokar: 45 mínútum fyrir brottför fyrir farþega með innritaðan farangur
Hliðið lokar: 10 mínútum fyrir brottför
Hraðleið í gegnum öryggisleit: Ekki í boði

Upplýsingar um betri stofu

Bergen Lounge

Opnunartímar
Sun.- Fim.: 05:00 - 17:20
Laugardagar: 05:00 - 19:30

Vefsíða Bergen Lounge