Viðskiptavinum Icelandair býðst að greiða forfallagjald þegar þeir kaupa flugmiða.
Greiðsla forfallagjalds tryggir endurgreiðslu á þeim hluta fargjalds sem greiddur hefur verið til Icelandair, og fæst annars ekki endurgreiddur, ef viðskiptamaður kemst ekki í fyrirhugað flug, séu skilyrði þessara skilmála uppfyllt. Komist farþeginn ekki í ferðina endurgreiðir Icelandair viðkomandi farseðla. Ef farþegi þarf að breyta ferðaáætlun eftir að ferð er hafin, mun Icelandair endurgreiða viðkomandi hluta farseðils (þann hluta farseðils sem hefur ekki verið notaður) eða breytingagjald (en ekki fargjaldamismun).
Nauðsynlegt er að framvísa undirrituðu læknisvottorði. Við fráfall náins fjölskyldumeðlims þarf að framvísa dánarvottorði. Ef forfallagjald hefur ekki verið greitt, stofnast ekki réttur til endurgreiðslu þó að læknisvottorði/dánarvottorði sé framvísað. Ef farþeginn sjálfur andast í ferðalaginu, endurgreiðum við miðann ef dánarvottorði er framvísað.
Forfallagjaldið bætir ekki ýmis þjónustugjöld s.s. bókunargjöld og önnur aukagjöld. Forfallagjaldið tryggir eingöngu endurgreiðslu vegna fargjalda sem greidd hafa verið til Icelandair. Það tryggir ekki endurgreiðslu vegna hótelgistinga og bílaleigubíla sem bókaðir eru á www.icelandair.com/is, svo að dæmi séu tekin.
Forfallagjald er í boði að kaupa um leið og fargjald eða staðfestingargjald er greitt eða í gegnum e-miða allt að 36 tímum eftir að flugmiðinn hefur verið bókaður.
Endurgreiðsla
Greiðsla forfallagjalds tryggir endurgreiðslu á þeim hluta fargjalds sem greiddur hefur verið til Icelandair, og fæst annars ekki endurgreiddur, ef viðskiptamaður kemst ekki í fyrirhugað flug vegna:
a) dauðsfalls, skyndilegra og alvarlegra veikinda eða slyss sem krefst sjúkrahússvistar hans eða maka hans (hvort sem um er að ræða maka í hjónabandi eða skráðri sambúð), barna eða barnabarna viðskiptamanns, foreldra hans eða tengdaforeldra, afa hans, ömmu eða systkina.
b) verulegs eignatjóns á heimili hans eða í einkafyrirtæki sem gerir nærveru hans nauðsynlega (lögregluskýrsla liggi fyrir).
Framangreind tilvik skulu vera þess eðlis að óhjákvæmilegt sé að afturkalla áður gerða pöntun. Forfallagjald er aldrei endurgreiðanlegt.
Greiðsla forfallagjalds tryggir ekki mögulegan fargjaldamismun vegna breytingar á dagsetningu flugs eftir að ferð er hafin.
Gildistaka
Skilyrðin fyrir því að viðskiptamaður öðlist rétt á endurgreiðslu eru eftirfarandi:
- að forfallagjald sé greitt;
- að viðskiptamanni sé ekki kunnugt um tjón/veikindi eða hafi grun um yfirvofandi tjón/veikindi sem stofnar til endurgreiðsluréttar, þegar forfallagjaldið er greitt.
Endurgreiðsluréttur gildir frá þeim tíma sem tilgreindur er í kvittun fyrir greiðslu þess og fram að brottför.
Undanskilin áhætta
Endurgreiðsluréttur myndast ekki í eftirfarandi tjónstilvikum:
- tjón sem verða vegna meiðsla sem menn veita sjálfum sér af ásetningi;
- tjón sem verða vegna veikinda sem tengja má neyslu áfengra drykkja eða lyfja, nema slík lyf séu tekin samkvæmt læknisráði, en þó að frátöldum lyfjum vegna læknismeðferðar sem stafa af notkun ávana- og fíkniefna;
- tjón sem beint eða óbeint eru af völdum kjarnabreytingar, jónandi geislunar, mengunar af geislavirkum efnum, kjarnaeldsneytis og kjarnaúrgangsefnis eða af völdum styrjaldar, innrásarhernaðaraðgerða, borgararósta, uppreisnar, uppþots eða svipaðra aðgerða. Sama gildir um tjón sem beint eða óbeint eru af völdum jarðskjálfta, eldgosa, flóða, skriðufalla eða annarra náttúruhamfara;
- tjón sem verður vegna niðurfellingar eða seinkunar áætlunarferðar;
- tjón sem verða vegna sjúkdóms sem viðskiptamaður var haldinn er forfallagjald var greitt, eða meðferðar hans vegna slíks sjúkdóms.
Forfallagjaldið nær ekki yfir endurgreiðslu þjónustugjalda s.s. bókunargjalda, eða annarra aukagjalda.
Ráðstafanir vegna tjóns – Endurgreiðsla
Tilkynna skal tjón þegar í stað og framvísa læknisvottorði eða lögregluskýrslu ásamt kvittun fyrir greiðslu flugmiða.
Endurgreiðsla fer fram innan 45 daga eftir að fullnægjandi sannanir hafa borist fyrir endurgreiðsluskyldu Icelandair samkvæmt skilmálum þessum og unnt er að ákveða fjárhæð endurgreiðslu. Vottorð sem og önnur gögn sem Icelandair kann að krefjast til að geta lagt mat á endurgreiðsluskyldu sína ber viðkomandi að leggja fram á eigin kostnað.
Ef viðskiptamaður á jafnframt rétt á bótum úr vátryggingu vegna sama tjónsatburðar greiðir Icelandair aðeins hlutfallslegar bætur.
Svik - Rangar upplýsingar
Skýri viðskiptamaður sviksamlega frá eða leyni atvikum er skipta máli um endurgreiðsluskyldu Icelandair glatar hann rétti sínum á hendur félaginu.
Heimili og varnarþing
Heimili Icelandair ehf. og varnarþing er í Reykjavík. Mál, sem rísa kunna vegna endurgreiðslu samkvæmt skilmálum þessum, skal reka fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
https://www.icelandair.com/is/adstod/skilmalar-og-skilyrdi/forfallagjald/
adstod