Skilmálar Hópadeildar Icelandair til Evrópu og Norður-Ameríku
Til að teljast hópur verða 10 farþegar eða fleiri að ferðast saman.
Verð gildir í 5 virka daga. Innan þess tíma þarf að staðfesta hópinn við Hópadeild Icelandair. Uppgefið verð við staðfestingu er þó háð breytingu á:
- erlendum gjaldmiðli vegna landþjónustu, framhaldsflugs eða annarrar þjónustu sem keypt er og skal gengi dagsins þegar greitt er gilda.
- fargjöldum, flugvallarsköttum, þjónustugjöldum og öðrum gjöldum.
Skila þarf endanlegum nafnalista eigi síðar en 10 vikum fyrir brottför til Evrópu en 12 vikum fyrir brottför til Grænlands, Bandaríkjanna og Kanada. Fullnaðargreiðsla skal liggja fyrir eigi síðar en 8 vikum fyrir brottför. Sé bókun gerð innan þess tíma skal fullnaðargreiðsla fara fram við bókun.
Gæta skal að nöfn farþega séu í samræmi við vegabréf.
Öll hópafargjöld eru bundin við að hópurinn ferðist saman á útleið. Heimilt er þó að breyta heimleið áður en farseðill er útgefinn, gegn 4.000 kr. breytingargjaldi og mögulegum fargjaldamun. Heimilt er að gera breytingar eftir útgáfu farseðils gegn 13.000 kr. gjaldi og mögulegum fargjaldamun. Ekki er leyfilegt að breyta hópabókun í nýjan áfangastað eftir útgáfu farseðla. Ef erlend flugfélög eru með í bókun er ekki alltaf hægt að gera breytingar á ferðatilhögun hópsins.
Vinsamlegast athugið að breytingar fyrir hópa eru gerðar í hópadeild Icelandair milli 08:00 og 16:00 alla virka daga í síma 505-0406.
Engar endurgreiðslur eru leyfðar nema greitt hafi verið forfallagjald og skilmálum þess fullnægt.
Staðfestingargjald, 15.000 kr. á mann, skal greiða innan tveggja vikna frá bókun.
Staðfestingargjald er óendurkræft.
Félagar í Vildarklúbbi Icelandair fá Vildarpunkta fyrir flug sín í hópferð.
Skilmálar þessir eru viðbót við flutningsskilmála Icelandair og eiga við í viðskiptum hópadeildar Icelandair og viðskiptavina þeirra, þar sem aðeins er keypt flug nema um annað sé samið sérstaklega og skal vera um það skriflegt samkomulag. Icelandair áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum án fyrirvara.
Farskráning telst staðfest við móttöku lokagreiðslu og útgáfu farseðla.