Pingdom Check


Skilmálar Icelandair Saga Club

Einstaklingar 12 ára og eldri geta sótt um aðild að Saga Club, ekki fyrirtæki, félagasamtök eða aðrar stofnanir. Með því að sækja um aðild heimila umsækjendur Icelandair að nota allar skráðar upplýsingar, þ.m.t. tölvupóstfang, til markaðssetningar og almannatengsla fyrir Icelandair, skyld félög og aðila sem Saga Club velur til samstarfs. Skoðast samþykki á þessum skilmálum sem fyrirfram samþykki í skilningi 1. mgr. 94. gr fjarskiptalaga, en umsækjandi getur afturkallað þetta samþykki á síðari stigum.

Umsækjandi þarf að skrá fullt nafn á umsóknina, þ.e. fornafn, millinafn (ef við á) og eftirnafn, eins og viðkomandi er skráður í vegabréfi. Einnig þarf umsækjandi að skrá inn virkt netfang og símanúmer. Allir Saga Club félagar fá úthlutað 10 tölustafa félaganúmeri við skráningu í Saga Club. Ef umsækjandi er með íslenska kennitölu þá er hægt að nýta hana sem Saga Club númer umsækjanda. Að öðrum kosti fær umsækjandi úthlutað Saga Club númeri að handahófi. Umsækjandi ber ábyrgð á að uppfæra persónulegar upplýsingar á Saga Club reikningi sínum ef um breytingar verða á t.d. heimilisfangi eða netfangi umsækjanda. Hver Saga Club félagi má aðeins eiga einn Saga Club reikning.

Einstaklingar á aldrinum 12 - 18 ára þurfa samþykki foreldris eða forráðamanns fyrir skráningu í Saga Club og til þess að njóta þeirra fríðinda sem felst í aðild að Saga Club. Með skráningu einstaklinga yngri en 18 ára í Saga Club staðfesta viðkomandi einstaklingar að samþykki foreldris eða forráðamanns liggi fyrir.

Hægt er að nýskrá sig í Icelandair Saga Club á vefsíðu Icelandair. Umsækjandi getur safnað Vildarpunktum og Fríðindastigum við skráningu í Saga Club. Þó er hægt að fá Vildarpunkta og Fríðindastig fyrir flug sem flogin eru allt að 12 mánuðum fyrir skráningu í Saga Club.