Flugmennirnir eða flugþjónarnir munu upplýsa viðskiptavinina um ástæðu breytingarinnar á flugleið. Viðskiptavinirnir geta þurft að vera um kyrrt um borð. Þegar tími gefst til munu flugþjónarnir útvega takmarkaða drykkjarþjónustu. Í tilvikum þar sem viðskiptavinirnir þurfa að fara frá borði verður að fjarlægja allan handfarangur og persónulega muni úr farþegarýminu.
Lent á varaflugvelli:
Við ákveðin frávik getur þurft að lenda á varaflugvöllum, með flutningi með hópbifreiðum á lokaákvörðunarstað. Það er í lagi að leyfa viðskiptavini að fara beint af varaflugvelli án þess að þurfa að ferðast á lokaákvörðunarstað.
Borg sem Icelandair þjónar:
Þegar flugi (flugvél) er beint til borgar sem Icelandair eða samstarfsaðili þess með sameiginlegt flugnúmer þjónar og því er aflýst munu þjónustufulltrúarnir í þeirri borg koma viðskiptavinum um borð í annaðhvort næsta flug með Icelandair eða næsta tiltæka flug með öðrum flugrekanda.
Borg sem Icelandair þjónar ekki:
Þegar flugi (flugvél) er beint til annarrar borgar sem Icelandair eða samstarfsaðili þess með sameiginlegt flugnúmer þjónar ekki og því er svo aflýst mun yfirmaður þjónustu við viðskiptavini í aðgerðastjórnstöð Icelandair gera ráðstafanir í samstarfi við aðra flugrekendur og/eða hótel. Eftir að flugþjónarnir frá fyrirmæli frá stjórnklefanum munu þeir upplýsa viðskiptavinina um ástæðu breytingar á flugleið (ef þeir hafa leyfi til að upplýsa um það), áætlaðan brottfarartíma og/eða gistingu. Sé fluginu aflýst verður farþegum komið um borð í flugvél hjá öðru flugfélagi, með fyrirvara um framboð. Flugþjónarnir og flugliðarnir verða fulltrúar Icelandair fyrir viðskiptavinina.
Hótelgisting og breytingar á flugleið til borga sem Icelandair eða samstarfsaðili þess með sameiginlegt flugnúmer þjónar ekki:
Þegar flutningar með öðrum leiðum eru ekki í boði fyrr en næsta dag og þörf er á næturgistingu munu flugþjónarnir og flugliðarnir upplýsa farþegana um hvaða kostnað Icelandair mun greiða. Eftirfarandi er listi yfir það sem Icelandair greiðir fyrir að því gefnu að fluginu sé aflýst af einhverjum öðrum ástæðum en vegna veðurs:
- Hótelherbergi (Icelandair stendur ekki straum af herbergisþjónustu, áfengi eða kvikmyndum)
Landflutningar til og frá hóteli (ef hótelið útvegar þá ekki)
Farþegar án farangurs fá endurgreitt gegn framvísun kvittana fyrir tilfallandi kostnaði innan skynsemismarka fyrir hlutum á borð við nauðsynlegar snyrtivörur þar til þeir fá farangurinn sinn aftur.