Pingdom Check


10/26/2018 | 12:00 AM

31. úthlutun úr Vildarbörnum Icelandair

20 barni og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í dag. Alls hafa 645 fjölskylda notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 15 árum og úthlutunin í dag var sú 31. í röðinni.  


Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins. 

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. 

Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa rúmlega 3100 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.