28 börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag
Reykjavík 25.04.19 - 28 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair í dag. Alls hafa 677 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 16 árum og úthlutunin í dag var sú 32. í röðinni.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á
hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi
var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um
árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt
fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna
Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er
verndari sjóðsins.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum
börnum eða börnum sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri
til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Við afhendinguna í morgun skemmti
Flugfreyjukór Icelandair viðstöddum með söng. Líkt og við úthlutun styrkjanna
undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu
fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem
geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair,
sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á
Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls
framlög og viðburðir. Hjónin Peggy Helgason og Sigurður Helgason gáfu sjóðnum
20 milljónir sem sérstakt framlag í ár til þess að efla styrk sjóðsins enn
frekar. "Það er okkur mikil ánægja að geta styrkt hinu góðu starfsemi
Vildarbarna, sem við höfum tekið þátt í með mikilli ánægju frá
upphafi" sögðu hjónin við afhendinguna í morgun.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð
fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug,
gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar
sér.
Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum
Vildarbarna við úthlutunina í morgun.