Pingdom Check


10/28/2019 | 11:00 AM

20 börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair

26.10.19 - 20 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals eitt hundrað manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóði Vildarbarna Icelandair í dag. Alls hafa 697 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans fyrir 16 árum og úthlutunin í dag var sú 33. í röðinni.  

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og er Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins. 

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum og börnum sem búa við erfið skilyrði, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. 

Við afhendinguna í morgun skemmti Flugfreyjukór Icelandair viðstöddum með söng. Líkt og við úthlutun styrkjanna undanfarið afhentu Sambíóin börnunum bíómiða. 

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Icelandair Saga Club sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir. 

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér.