Flug til Barcelona með Icelandair, verð frá 39.765 kr.*
Flug til Barcelona á næstu þremur mánuðum
Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (KEF)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (REK)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (REK)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (REK)-
Barcelona (BCN)Reykjavík (REK)-
Barcelona (BCN)* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Planaðu ferðalag til Barcelona með góðum fyrirvara
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð |
---|---|---|---|---|
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 15. júl. 2025 - 19. júl. 2025 | Frá 39.765 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 18. jún. 2025 - 20. jún. 2025 | Frá 39.765 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 25. jún. 2025 - 01. júl. 2025 | Frá 39.765 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 03. júl. 2025 - 04. júl. 2025 | Frá 39.765 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 14. jún. 2025 - 17. jún. 2025 | Frá 39.765 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 30. mar. 2025 - 01. apr. 2025 | Frá 53.165 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 31. mar. 2025 - 06. apr. 2025 | Frá 53.165 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 03. apr. 2025 - 06. apr. 2025 | Frá 53.165 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (REK) | TilBarcelona (BCN) | Báðar leiðir / Economy | 09. apr. 2025 - 14. apr. 2025 | Frá 53.165 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Ferðalag til Barcelona
Aðdráttarafl Barcelona
Barcelona hittir þig samstundis í hjartastað og það er auðvelt að sjá hvers vegna: heiðblár himinn, fagrar strendur, ljúffeng paella, barir sem opnir eru langt frameftir, sérkennileg list og arkitektúr sem kætir og léttir lund.
Og svo verðum við að nefna aðalaðdráttarafl borgarinnar fyrir marga sem sækja hana heim: strandirnar. Þekktust er Barceloneta-ströndin, en Llevant og Sant Sebatià eru engu síðri fyrir ferðalanga í leit að sól og slökun.
Er Barcelona hinn fullkomni áfangastaður fyrir borgarferð? Láttu eftir þér að kíkja til Barcelona og smakka tapas-réttina og skoða byggingarlist Gaudís. Sjáðu hvernig listin, arkitektúrinn, náttúran og menningin tvinnast saman í þessari töfrandi stórborg.
Með Icelandair VITA er hægt að bóka pakkaferð til Barcelona.
Samgöngur í Barcelona
Barcelona og byggðin í kring um borgina búa yfir góðu samgöngukerfi. Hér eru neðan- og ofanjarðarlestar, strætisvagnar og sporvagnar.
Í flestum tilfellum er auðveldast að ferðast með neðanjarðarlestinni. Lestarnar stoppa við flesta áhugaverðustu staðina í borginni og þú getur líka farið með neðanjarðarlestakerfinu út á flugvöll.
Nóg er af hjólreiðastígum í borginni og einnig er auðvelt að leigja hjól.
Auðvelt er að verða sér úti um leigubíl í borginni. Þau sem hafa í hyggju að leigja bíl ættu að hafa hugfast að umferðarþunginn getur verið mikill í borginni.
Hvað er við að vera í Barcelona?
Sérkennileg listfengi Antoní Gaudí hefur sett svo einstakt mark á Barcelona að borgin er nánast samnefnari fyrir list og arkitektúr.
Eftir hann liggur fjöldi bygginga, allt frá hinu ævintýralega Casa Batlló til hins frumlega og sérviskulega Parc Güell, en þar gefur að líta mikla ringulreið bogalína og litríkra flísa. Hans nafnkunnasta verk er þó án nokkurs vafa La Sagrada Família – hin ófullgerða dómkirkja.
Barcelona hefur alið af sér fleiri heimsþekkta listmenn en Gaudí. Fremstir meðal jafningja eru Pablo Picasso, Joan Miró og Salvador Dalí.
Borgin á sér langa og merka sögu og gotneska hverfið Barri Gòtic er stútfullt af fornum gersemum. Fyrir fótboltaáhugamenn er fátt sem toppar heimsókn á Camp Nou, heimavöll hins goðsagnakennda Futbol Club Barcelona.
Besti tíminn fyrir ferðalag til Barcelona
Barcelona er mest heimsótta borg Spánar og á háannatíma ferðamennskunnar í júlí og ágúst er borgin full af ferðamönnum á höttunum eftir hlýju veðri og spennandi menningarviðburðum. Á þessum tíma yfirgefa aftur á móti margir heimamenn borgina sína og ferðast til svalari svæða þar sem rakastigið er lægra.
Á haustin fækkar ferðamönnum samfara lækkandi histastigi. Október er oft mikill rigningarmánuður, svo það er ráðlegt að pakka regnfötum ef þú ert að plana ferðalag á þeim tíma. Jólum og áramótum er svo fagnað með miklum glæsibrag í borginni.
Besti tíminn til að fljúga til Barcelona er sennilega á vorin, í maí og júní. Hitastigið er þægilegt en ekki yfirþyrmandi og ferðamenn eru mun færri en yfir hásumarið.
Fyrir þau sem ekki setja fyrir sig aðeins kaldara loftslag, er tímabilið frá janúar fram í apríl kjörið. Á þessum tíma er flug og gisting talsvert ódýrari en á öðrum árstíma.
Verslað í Barcelona
Spænsk tískumerki – eins og Zara, Mango og Massimo Dutti – eru vel þekkt um allan heim. Á verslunargötum Barcelona leynist þó ýmislegt fleira sem er vel töskuplássins virði. Hér finnur þú tískuverslanir nýrra hönnuða, frábærar verslunarmiðstöðvar og götumarkaði sem selja ýmis konar sælkeravörur.
Þú finnur úrvalsvörur á afslætti á verslunargötununum suðvestan af hverfinu Passeig de Gracia. Kannaðu vinnustofurnar og litlu verslanirnar í El Born og þröngar götur Barri Gòtic.
Ef þú vilt frekar halda þig innandyra, er verslunarmiðstöðin Las Arenas kjörin fyrir búðaráp, en hún var nautaatshringur í fyrra lífi! Ekki missa af göngusvæðinu á þakinu, þaðan sérðu borgarlandslag Barcelona í allri sinni dýrð.
Matur í Barcelona
Barcelona er sannkallað kjörlendi sælkerans. Hér úir allt og grúir af tapas, fersku sjávarfangi, jamón ibérico og svalandi sangríum.
Og fyrir þau sem eru á höttunum eftir því allra fínasta, státar borgin af ófáum veitingastöðum með Michelin-stjörnur. Allt það besta fæst á Mercat de la Boqueria, markaði í miðborg Barcelona, við göngugötuna La Rambla. Hér er litadýrðin mikil og matarframboðið býður bragðlaukunum upp á mikla veisla.
Nóg er af góðum mat um alla borgina en það er alveg sérstök upplifun að snæða fiskrétti að hætti heimamanna við sjávarsíðuna. Fínustu staðin má finna í L’Eixample, meðan Gràcia býður upp á léttari hipsterastemningu og nóg af góðum börum og veitingastöðum.
Algengar spurningar um ferðalög til Barcelona
Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðamenn
Til hvaða flugvallar í Barcelona flýgur Icelandair?
Við fljúgum til Barcelona El Prat flugvallarins, stærsta alþjóðaflugvallar borgarinnar.
Hvernig kemst ég frá Barcelona-flugvellinum inn í miðbæ?
Þú getur ferðast frá flugvellinum inn í miðborg Barcelona með leigubíl, rútu, ofan- eða neðnjarðarlest. Ferðalagið tekur að öllu jöfnu um 30-40 mínútur.