Flug til Boston með Icelandair , verð frá 67.275 kr.*
Flug til Boston á næstu þremur mánuðum
Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (KEF)-
Boston (BOS)Reykjavík (REK)-
Boston (BOS)Reykjavík (REK)-
Boston (BOS)Reykjavík (REK)-
Boston (BOS)Reykjavík (REK)-
Boston (BOS)* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Planaðu ferðalag til Boston með góðum fyrirvara
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð |
---|---|---|---|---|
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 25. nóv. 2025 - 28. nóv. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 7 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 25. nóv. 2025 - 02. des. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 7 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 01. des. 2025 - 05. des. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 07. okt. 2025 - 14. okt. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 27. okt. 2025 - 31. okt. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 28. okt. 2025 - 31. okt. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 28. okt. 2025 - 04. nóv. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 11. nóv. 2025 - 18. nóv. 2025 | Frá 67.505 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
FráReykjavík (REK) | TilBoston (BOS) | Báðar leiðir / Economy | 01. júl. 2025 - 08. júl. 2025 | Frá 69.075 kr.* Síðast skoðað: 1 dagur síðan |
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Ferðalag til Boston

Upplifðu söguna í Boston
Fyrir nokkrum öldum breyttu pólitískar vendingar í Boston gangi sögunnar. Byltingarsinnar hófu að kljúfa sig frá nýlenduvaldhöfum og hófu þar vegferð sem endaði með sjálfstæði Bandaríkjanna.
Flest helstu kennileiti borgarinnar er að finna í fegurstu hverfum hennar. Þannig er hægt að fræðast um frelsisstríð Bandaríkjanna og njóta fegurðar miðborgarinnar á einum og sama göngutúrnum.
Eins og menningarborg sæmir eru mörg áhugaverð söfn, almenningsgarðar og stofnanir í Boston með sterkar tengingar við fortíðina. Heimsæktu heimkynni eins frægasta háskóla heims, Harvard-háskóla, þar sem ófáir sögufrægir hugsuðir og uppfinningamenn hafa unnið sín stærstu afrek.
Með Icelandair VITA er hægt að bóka pakkaferð til Boston.
Hvað er við að vera í Boston?
Boston iðar af menningarlífi. Af nógu er að taka fyrir ferðalanga og engin leið að gera allt í einni heimsókn.
Allar leiðir liggja að frelsisslóðinni eða Freedom Trail. Þetta er um 4 km löng gönguleið sem leiðir þig um 16 söguleg kennileiti, allt frá Boston Common að Bunker Hill Monument.
Áhugafólk um íþróttir tekur gengi Red Sox í hafnarbolta mjög alvarlega, sem og gengi Patriots á ameríska fótboltavellinum. Því er tilvalið að hvetja Red Sox áfram með heimamönnum á leik á Fenway Park, sem er elsti hafnarboltavöllur landsins.
Margir segja að enginn megi yfirgefa Boston án þess að reka inn trýnið á The Isabella Stewart Gardner safninu í miðborginni. Þar má finna evrópska, asíska og ameríska list í glæsilegri byggingu sem minnir á byggingarlist Feneyja.


Verslað í Boston
Skólapeysa úr Harvard og derhúfa frá Red Sox? Þetta er það klassískasta, en enginn getur kvartað undan úrvali minjagripa í Boston.
Ef þú ert að feta þig eftir Freedom trail, er ekki slæm hugmynd að byrja á markaðstorginu bak við Faneuil Hall. Þar má finna sölubása, mat, götulistamenn og minnisvarða sögunnar við hvert fótmál.
Boston er höfuðborg bandrískrar sögu og bandarískra fræða og því er úrval bóka- og antíkverslana sérstaklega yfirgripsmikið. Newbury Street í Back Bay er frábær staður fyrir verslunarráf. Þar er að finna vönduð vörumerki og fínerí, en líka góða staði til að stoppa á og hlaða batteríin.
SoWa Art + Design District er staðsett meðal gömlu pakkhúsanna í South End – kíktu þangað til að skoða einstakt handverk, gallerí og nýtískuverslanir.
Matur í Boston
Sagan er víða í Boston og ekki síst á matborðinu. Elsta veitingastað Bandaríkjanna er að finna í Boston: Union Oyster House (frá 1826).
Sjávarfang er það eftirsóttasta út um allan bæ – þorskur, humar, ostrur og kúskeljar. Ljúffeng, matarmikil fiskisúpa er ofarlega á óskalistanum og Seaport District er besti staðurinn til að finna alls konar girnilega fiskrétti.
Í hverfinu North End er hin eina sanna litla Ítalía þar sem ekta pizza og pasta er framreitt og vínbarir og bakarí bjóða upp á ósvikna sneið af amerískum kúltúr.
Hægt er að seðja hungrið seint að kvöldi til í South End og nágrannahverfinu Chinatown. Í Cambridge eru margir vinsælir staðir, þar með taldir margir sem henta námsmönnum í leit að ódýrari valkostum og skemmtilegu næturlífi.


Besti tíminn til að heimsækja Boston
Ef þú ert á höttunum eftir aðeins lægra flugverði og ódýrari gistingu, og vilt kannski sleppa við mestu ferðamannaösina, eru mánuðirnir september og október fullkominn tími til að heimsækja Boston.
Veturinn í Boston er auðvitað kaldari og oft liggur snjóbreiða yfir borginni. Aftur á móti er jólahátíðin mögnuð á að líta. Ljósadýrðin er mikil og skreytingar langt fram úr hófi, víða má sjá börn á skautum og jólamarkaðir eru á hverju strái.
Ef þú heimsækir Boston í mars, máttu ekki láta hina árlegu göngu á degi heilags Patreks, eða Saint Patrick’s Day, fram hjá þér fara. Íbúar Boston urðu fyrstir Norður-Ameríkubúa til að halda þennan dag hátíðlegan og þeir kunna svo sannarlega að halda uppi fjörinu!
Samgöngur í Boston
Boston er stórborg og þó að þú getir auðveldlega ferðast innan hvers hverfis fyrir sig fótgangandi eða á hjóli, liggur beint við að nýta almenningsamgöngur til að ferðast milli bæjarhluta.
Ýmsar leiðir eru færar. Hop-On Hop-Off vagnar þræða alla helstu merkisstaði borgarinnar en þú getur líka ferðast með venjulegum strætó eða jafnvel um borð í báti.
Auðvelt er að nálgast leigubíla á götum borgarinnar.

Algengar spurningar um Boston
Gagnlegar upplýsingar fyrir ferðamenn
Hvenær er ódýrast að fljúga til Boston?
Líklegast er að þú finnir ódýrt flug til Boston á köldustu mánuðum ársins (í janúar og febrúar). Jólahátíðin er að baki og það getur orðið ansi kalt og rakt, þar með er flugverðið lægra.
Hvað er flugvöllurinn í Boston langt frá miðbænum?
Það eru aðeins um 8 km frá Logan International Airport (BOS) niður í miðbæ. Ferðalagið tekur aðeins um hálftíma í neðanjarðarlest og um 10 mínútur ef þú ferð með leigubíl.