Flug til Detroit með Icelandair, verð frá 71.895 kr.*
Flug til Detroit á næstu þremur mánuðum
Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Reykjavík (KEF)-
Detroit (DTW)Akureyri (AEY)-
Detroit (DTW)Akureyri (AEY)-
Detroit (DTW)Akureyri (AEY)-
Detroit (DTW)Akureyri (AEY)-
Detroit (DTW)* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Planaðu ferðalag til Detroit með góðum fyrirvara
Frá | Til | Fargjald | Dagsetningar | Verð |
---|---|---|---|---|
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 01. apr. 2025 - 08. apr. 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 08. apr. 2025 - 15. apr. 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 15. apr. 2025 - 22. apr. 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 29. apr. 2025 - 06. maí 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 12. maí 2025 - 15. maí 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 20. maí 2025 - 27. maí 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 05. maí 2025 - 08. maí 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráReykjavík (KEF) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 27. apr. 2025 - 01. maí 2025 | Frá 71.895 kr.* Síðast skoðað: 23 klst. síðan |
FráAkureyri (AEY) | TilDetroit (DTW) | Báðar leiðir / Economy | 01. apr. 2025 - 08. apr. 2025 | Frá 92.850 kr.* Síðast skoðað: 20 klst. síðan |
* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.
Ferðalag til Detroit
Detroit í hnotskurn
Mikil endurnýjun hefur átt sér stað í Detroit á síðastliðnum árum og við erum spennt fyrir komandi tímum. Viltu sjá breytinguna með eigin augum?
Það er ástæða fyrir því að Time magazine nefndi Detroit sem einn af Bestu stöðum ársins 2022.
Komdu með okkur og kannaðu fæðingarstað Motown tónlistarinnar, heimsþekkta hönnun og list, líflega matarsenu og margt annað sem hefur glætt þessa sögulegu borg nýju lífi.
Icelandair býður upp á beint flug til bílaborgarinnar Detroit, sem bíður þess að vera uppgötvuð upp á nýtt.
Besti tíminn til að heimsækja Detroit
Michigan er eitt af þeim fylkjum Bandaríkjanna sem gaman er að heimsækja allt árið um kring.
Að því sögðu, er tímabilið frá apríl fram í maí og frá nóvember fram í desember æskilegt fyrir þau sem vilja forðast mesta ferðamannatímann. Veðurfar er líka gott á haustin og vorin.
Ef þú ferðast utan háannatíma ferðamennskunar býðst líka betra verð á gistingu og flugi.
En Detroit hefur líka sinn sjarma yfir vetrartímann og býður upp á gnægt af jólamörkuðum, jólaljósum og skautasvellum.
Við mælum með því að þú bókir flug til Detroit með góðum fyrirvara, til þess að fá sem hagstæðast verð.
Afþreying í Detroit og nágrenni
Það er margt skemmtilegt að upplifa innan borgarmarka Detroit, en það eru einnig áhugaverðir staðir í næsta nágrenni. Það er stutt yfir til Kanada, og Niagara fossar eru í um 380 km fjarlægð (sem er stutt á bandarískum mælikvarða!).
Nær Detroit er Belle Isle Park, eyja staðsett í Detroit ánni við miðbæ Detroit. Hún er aðgengileg um brú og þar er að finna dýragarð, sædýrasafn, sólskála, strönd og safn sem er tileinkað Vötnunum miklu.
Önnur afþreying sem hægt er að stunda eru gönguferðir, grill, hjólreiðar, kajak og fleira.
Í stuttri fjarlægð er háskólabærinn Ann Arbor sem er reglulega á lista yfir þá staði þar sem best er að búa í Bandaríkjunum. Detroit er 70 km frá Ann Arbor og Amtrak lest gengur á milli borganna, sem tilvalið er að heimsækja fyrir áhugaverða listasenu og skemmtilegan kúltúr.
Merkilegir staðir í Detroit
Uppruna Detroit sem heimsborgar má rekja til bílaiðnaðarins í byrjun 20. aldar.
Frá þeim tíma standa fjölmargar magnaðar Art Deco byggingar og Henry Ford safnið, sem samanstendur af ótrúlegum sígildum bílum og öðrum skemmtilegum sýningum.
Tónlistarleg arfleifð borgarinnar telur Motown-hljóminn sem spratt upp á 5. áratug síðustu aldar og gat af sér frægt tónlistarfólk á borð við Ettu James, Marvin Gaye, Díönu Ross og Stevie Wonder. Motown tónlistarsafnið er engu líkt og ómissandi áfangastaður fyrir tónlistarunnendur.
Detroit er einnig fyrsta bandaríska borgin til að hljóta nafnbótina UNESCO City of Design, enda stútfull af götulist sem og þekktari verkum sem finna má í Detroit Institute of Arts. Fyrir einstaka útilist er Heidelberg staðurinn fyrir þig.
Bestu bitarnir í Detroit
Upplifðu matargerð Detroit-búa á Eastern Market frá 1891 – þetta er stærsti bændamarkaður í Bandaríkjunum og í nágrenni hans eru góðir veitingastaðir og verslanir. Athugaðu opnunartíma markaðsins, hann er opinn allan ársins hring á laugardögum og einnig á þriðjudögum og sunnudögum á sumrin.
Detroit er einnig þekkt fyrir marga rétti, Detroit-style pizza rekur uppruna sinn til ömmupizzu Sikileyjar – ferköntuð pizza bökuð í móti sem gefur henni stökka skorpu og vel glóðaðan ost. Coney Island pylsur með chili, lauk og sinnepi og corned beef samlokur eru einnig vel þess virði að smakka.
Um alla borg eru meistarakokkar sem galdra fram sælkerarétti á kaffihúsum og nýjum veitingastöðum, sérstaklega í Corktown.
Fyrir heimsmatargerð er Greektown fyrir grískan mat, Hamtramck fyrir pólskan mat og Dearborn fyrir arabískan mat.
Samgöngur í Detroit
Þú kemst auðveldlega um fótgangandi innan hvers hverfis fyrir sig, en fyrir ferðalög vítt og breitt um borgina eru almenningssamgöngur eða leigubíll málið.
Detroit býr yfir öflugu samgöngukerfi. Hér eru léttlestir, sporvagnar, strætisvagnar, leigubílar og skutluþjónusta.
Það getur komið sér vel að leigja bíl, en gott er að hafa í huga að umferðin getur verið þung og erfitt að finna bílastæði.