Pingdom Check

Tilboð til sex spennandi borga!

Icelandair og Arion bjóða Saga Club félögum sem safna Vildarpunktum með kreditkorti frá Arion 30% afslátt af Economy Standard og Saga Premium fargjöldum til sex spennandi borga með afsláttakóðanum: ARION, sama hvort greitt sé með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum.

Til að virkja afsláttinn þarf að nota afsláttarkóðann: ARION í bókunarvél Icelandair, hér að neðan eða á forsíðu Icelandair.

Bókunartímabil: 18. – 19. febrúar.

Ferðatímabilið: 1. mars – 30. apríl.*

Þær borgir sem í boði eru: Amsterdam, Lissabon, Manchester, New York, Osló og Zürich.

*Athugið að afsláttur er háður takmörkunum á sætaframboði og því ekki hægt að tryggja að hann gildi á allar dagsetningar. Sértaklega á þetta við innan páskatímabilsins dagana 11. – 22. apríl.

Vildarpunktar og Fríðindastig – hver er munurinn?

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaup vörur og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíl, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar Saga Club félagar safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.