Athugið að ferðin skal hefjast á Íslandi til þess að fá afsláttinn og ekki er veittur afsláttur af sköttum og gjöldum.
Afsláttarkóðinn er aðeins virkur fyrir fargjöld sem bókuð eru í gegnum bókunarvélina á síðu Icelandair og ekki er hægt að hringja inn í þjónustuver til þess að bóka með afslættinum.
Saga Club félagar fá Vildarpunkta og Fríðindastig skráð inn á Saga Club reikninginn sinn um 24-48 tímum eftir að flugið er flogið, ásamt tvöfölduninni á Vildarpunktum.
Innifalið á Economy Standard: Flug, flugvallarskattar, ein innritun taska (allt að 23 kg), ein 10 kg handfarangurstaska, sætaval í boði, Vildarpunktasöfnun, óáfengir drykkir í boði, afþreyingarkerfi.
Innifalið á Economy Flex: Flug, flugvallarskattar, ein innrituð taska (allt að 23 kg), ein 10 kg handfarangurstaska, sætaval í boði, Vildarpunktasöfnun, óáfengir drykkir í boði, afþreyingarkerfi, ekkert breytingargjald en gæti þurft að greiða fyrir fargjaldamun og endurgreiðsla fargjalds í boði.
Innifalið á Saga Premium: Flug, flugvallarskattar, tvær 32 kg innritaður töskur, 10 kg handfarangurstaska, forgangsinnritun, Saga Lounge aðgangur og öðrum betri stofum, hraðleið í gegnum öryggisleit, forgangur um borð í vél, betra sæti, matur, drykkur, aðgangur að þráðlausu neti um borð og aukinni Vildarpunktasöfnun.
Innifalið á Saga Premium Flex: Flug, flugvallarskattar, tvær 32 kg innritaður töskur, tvær 10 kg handfarangurstaska, forgangsinnritun, Saga Lounge aðgangur og öðrum betri stofum, hraðleið í gegnum öryggisleit, forgangur um borð í vél, betra sæti, matur, drykkur, aðgangur að þráðlausu neti um borð, aukinni Vildarpunktasöfnun, endurgreiðsla í boði á flugfargjaldi og ekkert breytingagjald en gæti þó þurft að greiða fyrir fargjaldamun.
Hægt er að nota Vildarpunkta sem greiðslu, ýmist að fullu eða að hluta til, með því að blanda saman Vildarpunktum og annarri greiðsluleið. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni.
Athugaðu að félagar safna einnig Vildarpunktum þegar þeir nota Vildarpunkta.
Ferð verður að hefjast á Íslandi, lágmarksdvöl er aðfararnótt sunnudags eða þrír sólarhringar á áfangstað. Síðasti heimferðardagur er síðasti dagur ferðatímabils sem gefinn er upp hér að ofan.
Breytingar eru ekki leyfðar á tilboðinu, en hægt er að nýta tilboðið upp í skráð fargjald, gegn greiðslu fargjaldamismunar.
Endurgreiðsla er ekki í boði nema á Flex fargjöldum.
Frá 1. maí til 30. september eru brottfarar- og flugvallargjöld 1.000 kr. hærri en frá 1. október til 30. apríl.
Sætaframboð er takmarkað.
Upphæð á sköttum og gjöldum er háð gengi dagsins.
Af tæknilegum ástæðum, gæti verið örlítill mismunur á verðunum sem birtast á þessari síðu og verðunum í bókunarvélinni.