Pingdom Check

Tvöföld ánægja til Madrídar & Nice

Saga Club félagar sem bóka flug til Madrídar eða Nice dagana 21. maí til 27. maí og fljúga á milli 3. júní - 14. október, 2024 fá tvöfalda Vildarpunkta og tvöföld Fríðindastig.

Til þess að fá tvöfalda Vildarpunktar og Fríðindastig þarftu að muna eftir að setja Saga Club númerið þitt í bókun og að fluginu loknu færðu Vildarpunktana og Fríðindastigin á Saga Club reikninginn þinn ásamt tvöfölduninni.

Bókunartímabil: 21. maí til 27. maí, 2024.

Ferðatímabil: 3. júní - 14. október, 2024.

Tvöföldunin er boði hvort sem greitt er með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig inn á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni sem kemur upp í lokaskrefi bókunar.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaup vörur og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíl, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar Saga Club félagar safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.