Pingdom Check

Samstarf með Peter Salmon Golf

Hægt er að velja ótakmarkað golf daglega eða ótakmarkað golf annan hvern dag.

ATH. Eingöngu verða 18 holur opnar á Golf del Sur í haust og vetur, Norður og Links vellirnir. Suður völlurinn er tímabundið lokaður. Rástímar okkar eru oftast á bilinu 08.00-09.30 daglega.

Royal Tenerife Country Club  er mjög hugguleg íbúðagisting á golfvellinum eða um 3 mín ganga að klúbbhúsinu. Á svæðinu er sundlaugarbar með veitingum, kaffihús og matvöruverslun. Hér er hægt að skoða myndband frá Royal Tenerife Country club. 

Golfvöllurinn: Golf del Sur er einn af bestu golfvöllunum á Tenerife. Þar hafa verið haldin stórmót fyrir Evrópu túrinn sem er góður mælikvarði á gæðin. Það er einstaklega fallegt á Golf del Sur og frá klúbbhúsinu er stórkostlegt útsýni yfir hluta af vellinum og út á glitrandi hafið. 

Golfvöllurinn er 18 holur með mismunandi einkennum. Heilmikið landslag og gil eru í sumum brautum og aðrar eru flatari en þær eiga það sameiginlegt að vera umkringdar pálmum og fallegum kaktusum. Brautirnar eru breiðar og flatirnar eru stórar.

Golf del Sur - sjá myndband

Golfbílar:
Golfbílar eru pantaðir og greiddir í golfskálanum á Golf del Sur:
5 hringja pakka tilboð fyrir Icelandair VITA farþega er 33 evrur fyrir 18 holur.
Golfkerrur daglega eru innifaldar í öllum okkar ferðum.

Ótakmarkað golf alla daga með kerru eða annan hvern dag nema komu og brottfarardagaFararstjórn (lágmark 16 manns).

Matur, drykkir og akstur til og frá flugvelli og að golfvellinum er ekki innifalinn. 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Golf á Golf del Sur

Flutningur á golfsetti

Flutningur á golfsetti innifalinn

Gististaðir

fráISK 208.800 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu