Íslensk fararstjórn er innifalin.
Hurghada í Egyptalandi er vinsæll, framandi og spennandi áfangastaður við Rauðahafið og El Gouna er lítil paradís, um 25 km norður af miðbæ Hurghada.
Báðir staðir hafa sinn sjarma og bjóða upp á lúxus afþreyingu, gistingu og umhverfi.
Hurghada er borg sem teygir sig meðfram strandlengjunni og þar er að finna fjölbreytta þjónustu.
El Gouna er nýrra svæði sem er staðsett við Rauðahafsströndina og byggt upp með ferðaþjónustu í huga. Það er rómað fyrir lúxushótel og afslappað andrúmsloft.
Á báðum stöðum er hægt að stunda ýmis konar vatnasport eins og köfun og snorkl og uppgötva litríkt sjávarlíf og kóralrif.
Sagan
Hurghada var smábær þar sem flestir íbúar stunduðu fiskveiðar, en upp úr 1970 hófst vöxtur í ferðaþjónustu þar sem svæðið þótti fallegt og loftslagið gott. Með tímanum fjölgaði verslunar- og þjónustufyrirtækjum sem höfðu það að markmiði að skapa ævintýralegt frí frá hversdagsleikanum.
El Gouna svæðið er glæsilegur ferðamannastaður í eigu egypska auðjöfursins Samih Sawiris og þar er sérstök áhersla lögð á glæsilega innviði, vellíðan gesta og hágæða aðstöðu. Svæðið samanstendur af fjölda lóna og lítilla eyja sem eru tengdar saman með brúm og mynda fallega heild.
Afþreying á svæðinu
Fjölbreytt afþreying er í boði á báðum stöðum. Í Hurghada borg er fallegur miðbær með verslunum, veitingastöðum, kaffihúsum og börum.
El Gouna er þekkt fyrir flotta umhverfishönnun, ótrúlegt útsýni, úrval veitingastaða, heilsulindir, golfvelli, leikvelli og ýmsa skemmtun fyrir allan aldur. Markmiðið var að skapa umgjörð sem fellur vel að umhverfinu.
Fyrir þá sem elska útivist og náttúru er vatnasportið ómissandi á báðum stöðum, í kristaltærum sjónum, enda eru kóralrifin í Rauðahafinu heimsþekkt fyrir fjölbreytt lífríki.
Eyðimerkurferðirnar í nágrenni Hurghada og El Gouna eru krydd í tilveruna og fjör að þeytast um sandöldur á skemmtilegum farartækjum. Þessar ferðir eru einstakt tækifæri til að kanna töfrandi landslagið sem umlykur þessa staði. Útsýnið er stórbrotið, umhverfið dularfullt og fegurðin hrífandi.
Strendurnar við Rauðahaf
Rauðahafið er þekkt fyrir fagurbláan sjó, heitt loftslag allt árið og hvítar sandstrendur sem laða til sín gesti frá öllum heimshornum. Strendurnar í Hurghada eru dásamlegar með ýmiskonar þjónustu fyrir alla aldurshópa. Í El Gouna er andrúmsloftið aðeins rólegra og þar má gera ráð fyrir afslöppun og góðri þjónustu.
Báðir staðir eru eins konar nirvana fyrir þá sem kjósa strandlífið.
Egypska menningin teygir sig meira en 5000 ár aftur í tímann og er lifandi, spennandi og margbreytileg. Umfram allt er Egyptaland vafið dulúð náttúrunnar og sögulegum töfrum sem laða að sér ferðafólk.
Vegabréfsáritun
Sækja þarf um visa áritun til Egyptalands. Áritunin kostar 25$. Nánari upplýsingar koma síðar.
Vegabréf
Vegabréf verða að gilda minnst 6 mánuði fram yfir áætlaða heimkomu
Stærð og íbúafjöldi
Egyptaland er um 1.01 milljón ferkílómetrar og íbúafjöldi er um 98 milljónir.
Tímamunur
Egyptaland er 2 klukkustundum á undan Íslandi í nóvember.
Sími
Hringja til Egyptalands : 00 11 20 + símanúmer.
Tungumálið
Arabíska er hið opinbera tungumál.
Veðurfar
Í nóvembermánuði er meðalhiti á daginn um 23° og fer niður í 14° á kvöldin.
Gjaldmiðillinn
Egypski gjaldmiðillinn er egypskt pund EGP en bandaríski dollarinn er líka víða notaður.
Hraðbankar
Finnast víða og flestir taka við íslenskum kortum. Gætið þess að láta kort aldrei úr augsýn þegar greitt er.
Rafmagn
220 volt
Ónæmisvarnir
Ávallt er ráðlagt að leita læknis, helst 2 mánuðum áður en lagt er í ferðina, til þess að hægt sé að framkvæma nauðsynlegar bólusetningar. Hægt er að fá upplýsingar á netspjalli Heilsuveru.