Flug frá Keflavík til Ilulissat.
Akstur frá flugvelli á vegum hótelsins.
Gisting: Hotel Hvide Falk í tveggja manna herbergi með sérbaðherbergi, morgunverður innifalinn alla daga.
HOTEL HVIDE FALK er staðsett miðsvæðis í Ilulissat og býður upp á 3 stjörnu gistirými með verönd, veitingastað og bar. Hótelið býður upp á ókeypis WiFi.
Öll herbegin á hótelinu eru með svalir, skrifborð og flatskjá og sum af þeim hafa einnig útsýni yfir bæinn.
Á hótelinu er hægt að velja um morgunverðarhlaðborð eða léttan morgunverð.
Stórir gluggar á veitingastaðnum hótelsins gefa gestum tækifæri til að njóta stórkostlegs útsýnis yfir fjörðinn með rísa ísjökum á meðan verið er að snæða morgun- eða kvöldverð.
Á veitingastaðnum er boðið upp á mat úr héraði, svo sem sjávar- og kjötrétti með því sem grænlenska náttúran bíður upp á. Matseðillinn er nokkuð misjafn eftir árstíðum, en á barnum er einnig hægt að panta sér bjór sem framleiddur er í bruggsmiðju í bænum.
Morgunverður á hótelinu (kl. 6:00-10:00)
Sigling um Ísfjörð. Ferðin tekur 2,5 klukkutíma
Brottfarartími getur verið misjafn eftir dagsetningum. Brottfarartímar eru: 11.30, 16.30 og 21.30.
Hótelið kemur til með að láta ykkur fá upplýsingar klukkan hvað ykkar ferð hefst.
Mæting: Hotel Hvide Falk, 15 min. fyrir auglýsta brottför.
Ísfjörður við Ilulissat, kallaður á grænlensku „Ilulissat Kangerlua“ er staður með einn afkastamesta skriðjökli jarðar. Til þess að sjá og skilja raunverulega fegurð þessa rísa ísjaka verða menn að fara í bátsferð og sigla á milli þeirra. Séð frá báti eru þeir eins og ísfjöll sem rísa beint upp úr hafinu.
Allur Ilulissat ísfjörður er skráður á heimsminjaskrá UNESCO vegna mikillar ísjakaframleiðslu jökulsins Sermeq Kujalleq neðst í ísfjarðarbotni og gríðarmikilla ísjaka sem eru fastir í enda hans.
Sama hvernig veðrið er, ísjakarnir verða alltaf magnaðir að sjá. Sólin lætur hvíta ísinn skína og glitra, á meðan bláu litirnir íssins koma fram þegar skýjað er.
Allar bátsferðir eru í löggiltum ferðabátum og með reyndum leiðsögumönnum. Þeir munu segja ykkur frá ísnum og mikilvægi hans fyrir svæðið á meðan siglt er framhjá gríðarmiklum ísjakunum.
Frjáls dagur eða heimferðardagur, fer eftir lengd ferðar
Morgunverður á hótelinu (kl. 6:00-10:00).
Heimferðardagur:
Morgunverður á hótelinu
Frjáls dagur til að skoða sig um á eigin vegum fram að brottför.
Útskráning af hóteli er fyrir kl. 10:00. Hægt að geyma farangur á hótelinu. Akstur frá hóteli á flugvöll á vegum hótelsins.
Frjáls dagur:
Frjáls dagur eða dagar r til að skoða sig um á eigin vegum, fer eftir lengd ferðar.
Ilulissat er þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi með um 4900 íbúa. Bærinn er á miðri vesturströnd landsins og um 200 kílómetrum norðan við norðurheimskautsbaug. Nafn bæjarins, Ilulissat, þýðir "Ísjaki" á grænlensku. Ísfjörður við Ilulissat var tilnefndur á Heimsminjaskrá UNESCO árið 2004. Grænlensk-danski heimskautafarinn Knud Rasmussen fæddist og ólst upp í Ilulissat og er þar nú safn um hann og rannsóknir hans.
Á veturna fer hitastig allt niður í -30°C en á móti kemur að loftslag er mjög þurrt sem gerir það að verkum að kuldinn verður bærilegri. Að sumri til getur hiti farið upp í rúmar 20°C.
Möguleiki að kaupa afþreyingu í Ilulissat og Disco flóanum eins og til dæmis 3ja tíma kajakferð, bátsferð til Eqijökuls, Oqaatsut eða Ilimanaq og gönguferð til Sermermiut eyðibýlis við Ísfjörð.