Komum með stuðninginn!
Nú styttist í stóru stundina. Leikur Íslands og Úkraínu fer fram annað kvöld og þið verðið á staðnum! Það verður einstök stund að ganga inn á leikvanginn, finna lyktina af grasinu og taka þátt í þessum sögulega viðburði. Hér fyrir neðan eru allar helstu upplýsingar um ferðina og skipulag dagsins.
Dagskrá 26. mars: Allar tímasetningar eru á staðartíma.
06:00 - Innritun hefst. Vinsamlegast farið að innritunarborðum 30, 31 og 32.
08:00 - Ævintýrið hefst með brottför FI1532 frá Íslandi.
12:45 - Lending í Wroclaw í Póllandi. Rútur munu flytja okkur frá flugvellinum og á Wroclaw Market-Square. Þar munum við hita upp fyrir leikinn og keyra upp stemninguna. Fjöldi veitingastaða er við torgið og því auðvelt að sækja sér orku og innblástur fyrir leikinn.
18:45 - Rútur aka okkur frá Wroclaw Market-Square á Wroclaw Stadium (Stadion Tarczyński Arena).
20:45 - Stundin sem við höfum öll beðið eftir. Blásið til leiks og stuðningshrópin sett í gang.
23:00 - Eftir leik munu rútur flytja okkur frá leikvanginum aftur á flugvöllinn.
01:45 - Brottför heim til Íslands með FI1533
04:45 - Áætluð lending í Keflavík.
Þá er bara að pakka landsliðstreyjunni, henda nokkrum hraustlegum Húh-um í handfarangur, skella sér í góða skapið og koma með stuðninginn!
Áfram Ísland!
Í boði er pakkaferð með Icelandair til að sjá landsleik Íslands á móti Úkraínu í Wroclaw þann 26. mars.
Innifalið: Flug báðar leiðir, rúta frá flugvelli í miðbæ Wroclaw við komu, og rúta frá leikvangi á flugvöll að leik loknum.
26. mars:
Miði á leikinn verður afhentur um borð á leiðinni út
Athugið að sætaframboð er takmarkað
Verð á mann 89.000. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, akstur til og frá flugvelli og miði á leikinn.
Starfsfólk á vegum Icelandair fer með hópnum.
Þetta verður sannkölluð stemningssamkoma. Áfram Ísland
Fyrir frekari fyrirspurnir eða upplýsingar, vinsamlegast hikaðu ekki við að hafa samband á [email protected]