Pingdom Check

Borg sem gleður augað

París á sér margar hliðar enda þekkt fyrir hverfin sín 20 og einstakt mannlífið í hverju þeirra. Hvort sem þú ert á leið í verslunarleiðangur á Champs Elysées, ganga í fótspor listamanna í Montmartre eða kanna þekktustu kennileitin á borð við Frúarkirkjuna, Eiffelturninn og Sigurbogann, þá verður enginn svikinn af þessari mögnuðu borg.

Það er tilvalið að fara í stuttar dagsferðir frá París. Í nágrenni borgarinnar er Versalahöllin og Loire-dalurinn, en þar er að finna stórglæsilegar hallir sem áður voru sumarhús frönsku hirðarinnar. Euro Disney er einnig í stuttri fjarlægð sem gaman er að heimsækja með fjölskyldunni.

Hér má finna upplýsingar um og bóka skemmtilega afþreyingu sem er í boði í París og nágrenni!

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting

Gisting í tveggja manna herbergi
Morgunverður innifalinn

Skattar og gjöld

Flugvallarskattar og gjöld

Gististaðir

fráISK 91.500 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu