Tenerife er vinsæl og skemmtileg eyja
Beint flug frá Akureyri 25. mars - 4. apríl 2025!
Tenerife er með fallegar strendur, frábær hótel og úrval af afþreyingu. Eyjan er skemmtilegur ferðamannastaður þar sem allt er til alls og hin spænska menning heimamanna blómstrar með tilheyrandi matargerð og mannlífi.
Þar eru allar forsendur til staðar fyrir hinu fullkomna fríi, sól og veðursæld allt árið um kring, hlýr sjór og gylltur sandur, frábært úrval fjölbreyttra veitingastaða og aragrúi ólíkra verslana. Vertu viss um að gleyma ekki sundfötunum og sólarolíunni.
Sól og sandur er auðvitað í stóru hlutverki á Tenerife en mundu jafnframt að Tenerife hefur upp á svo margt annað að bjóða líka.