Pingdom Check

Peter Salmon GOLF

Fullt fæði, ótakmarkað golf og golfbíll.

Við Miðjarðarhafsströnd Spánar á milli borganna Murcia og Almeria er sannkölluð golfperla. Stutt er til næstu bæja, Vera ca. 5 mín. akstur og ca. 10. mín. akstur er til Garrucha. Frá flugvellinum í Alicante er u.þ.b. 2ja tíma og 10 mín. akstur til Valle del Este. Sjá kort

Fyrsti teigur er beint fyrir utan hótelið ásamt æfingasvæði. Búið er að útbúa nýtt glæsilegt stuttaspils svæði þar sem hægt er að slá allt að 100 metra högg. Góð sundlaug til að henda sér í eftir hringinn, veitingastaður, bar og verslun með einstaklega smekklegar og flottar golfvörur og svo sjálfur golfvöllurinn er beint fyrir utan hótelið.

Gestum líður afar vel á hótelinu sem er með björt herbergi og alla aðstöðu sem til þarf m.a. glæsileg heilsulind/Spa. Lítil verslunarmiðstöð er við hliðina á hótelinu og þar er m.a. lítil kjörbúð, kaffihús og nokkrir veitingastaðir Tapas og Tælenskur. Valle del Este er draumur hvers kylfings, einstaklega fallegur golfvöllur. Valle del Este er virkilega skemmtilegur valkostur fyrir alla kylfinga.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Gisting með fullu fæði

Fullt fæði innifalið

Golf á Valle del Este

Ótakmarkað golf

Ótakmarkað golf

Golfbíll

Golfbíll

Flutningur á golfsetti

Flutningur á golfsetti innifalinn

Gististaðir

fráISK 211.100 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu