Pingdom Check

Sól og hiti í febrúar  - Sigling í Karíbahafinu 

Celebrity Eclipse
24. febrúar - 9. mars
Fararstjóri: Kristjana Lilja Wade

Orlando og Ft. Lauderdale, Flórída - Kralendijk, Bonaire - Oranjestad, Aruba - George Town, Grand Cayman. 

Stutt ferðalýsing 

Flogið með Icelandair einni partinn 24. febrúar, lending í orlando og ekið beint á hótel þar sem gist er í Orlando í 3 nætur fyrir siglingu. Í siglingunni er komið við á þremur yndislegum eyjum í Karíbahafinu sem eru.  Bonaire, Aruba og  Grand Cayman áður en haldið er aftur til Flórida og komið í lang í Ft. Lauderdale. Ekið aftur til Orlando þar sem gist er eina nótt áður en haldið er heim á leið. 

Flugtafla 

Flugnúmer

Dags

Flugvöllur 

Brottför

Flugvöllur 

Lending 

FI689

24. febrúar

Keflavík

17:15

Orlando

20:35

FI688

09. mars

Orlando

18:55

Keflavík

06:15+1

Siglingarleið

Dagur

Áfangastaður

Koma

Brottför

27. febrúar

Ft. Lauderdale, Flórída

 

15:30

28. febrúar

Á siglingu

 

 

1. mars

Á siglingu

 

 

2.mars

Kralendijk, Bonaire

09:00

18:00

3. mars

Orenjestad, Aruba 

08:00

 

4. mars

Orenjestad, Aruba 

 

16:00

5. mars

Á siglingu

 

 

6. mars

George Town, Grand Cayman

08:00

18:00

7. mars

Á siglingu

 

 

8. mars

Ft. Lauderdale 

07:00

 

Ferðatilhögun

orlando_2.jpg

Mánudagur  24. febrúar. Keflavík - Orlandó
Flogið með Icelandair seinni part 24. febrúar eða um  kl. 17:15 og lent í Orlando kl: 20:35 að staðartíma.
Flugið tekur tæpa 8 klst. Þegar komið er út út flugstöðinni bíður rútan eftir hópnum og ekið á  hótel Home2 Suites by Hilton Orlando South Park þar sem gist er næstu þrjár næturnar. 

orlando.jpg

Þriðjudagur 25. og miðvikudagur 26. febrúar
Tveir fyrstu dagarnir teknir rólega í Orlando. hægt að að skoða næsta umhverfi, fara í búðir eða bara að njóta veðursins og leggjast á bekk við sundlaugina. 

celebrity_eclipse_2.jpg

Fimmtudagur 27. febrúar Orlando - Celebrity Eclipse
eftir morgunverð er ekið til Ft. Lauderdale og tékkað inn um hádegisbil.  Gott að nýta tímann fram að brottför að finna klefann sinn, fá sér léttan hádegisverð þar sem mikið úrval er að mags konar réttum eða ganga um skipið og byrja að njóta. Þegar kemur að brottför er gaman að koma sér fyrir á góðum stað uppi á þilfari og fylgjast með þegar Eclipse siglir út innsiglinguna að Port Everglades höfninni.

celebrity_eclipse_topper.jpg

Föstudagur 28. og laugardagur 1. mars Á siglingu
Fyrstu tveir dagarnir eru á sjó og siglt suður Karíbahaf og alla leið að norðurströndum Suður- Ameríku. Á fyrri deginum er gott að nota morgunin í að skoða skipið og mun fararstjóri ganga um skipið og kynna það fyrir hópnum svo auðveldara sé að rata um það. Mikið er um að vera þessa daga sem skipið er á siglingu og hægt að velja úr alls konar kynningum, námskeiðum eða bara að njóta þess að njóta sólar og þjónustu um borð sem er fyrsta flokks, hvort sem það er að láta dekra við sig í nuddi eða snyrtingu eða bara á sundlaugardekkinu. á kvöldin eru síðan 3ja rétta máltíðir auk þess að fara í leikhúsið eða njóta tónlistar frá frábærum listamönnum sem eru um allt skip. 

bonaire.jpg

Sunnudagur  2. mars Kralendijk, Bonaire
Kyrrlætið einkennir Kralendijk, höfuðborg Bonair-eyju sem tilheyrir Hollensku Attillaeyjum. Þó er litagleðin við völd í kalksteinshúsunum þar sem bleikir, appelsínugulir og lime-grænir litir kallast á. Bonaire er þekkt fyrir frábærar aðstæður til köfunar, sjávargrunnið í kringum eyjuna er einn stór
vatnasportgarður, en ekki síður fyrir breiður flamingófugla, góðar gönguleiðir og eina spilavítið í Karíbahafi þar sem berfættir eru boðnir velkomnir

aruba_oranjestad_cruise_2.jpg

Mánudagur 3. og þriðjudagur 4. mars. Oranjestad, Arúba
Tveir dagar á þessari yndislegu eyju, Celebrity Eclipse leggur að bryggju kl 8 að morgni 3. mars og fer ekki fyrr en kl 16:00 daginn eftir.
Á hrífandi fagurri suðurströnd Arúba stendur höfuðstaður eyjunnar, Oranjestad. Útskornar hurðir í bland við hefðbundnar hollenskar flísar og opnar verandir á marglitum, reisulegum húsunum ljá þessum gamla hollenska höfuðstað eyjunnar einstaklega sjarmerandi blæ. Hér mættust ólíkir siðir og venjur frumbyggjanna og hollensku nýlenduherranna og til varð einstaklega heillandi samfélag. Þeir sem heimsækja eyjuna í dag geta notið þess besta úr báðum menningarheimum auk þess að njóta fegurðar strandlengjunnar, frábærra aðstæðna til köfunar og spennandi næturlífs.

celebrity_eclipse_7.jpg

Miðvikudagur  5. mars Á siglingu 
Heill dagurtil að njóta lífsins um borð í skipinu, sem nu siglir til Grand Cayman. Njótið þess að skoða skipið, leggjast á sólbekk við sundlaugina og smakka hina litskrúðugu og ljúffengu  kokteila sem barþjónarnir blanda. Svo má fara í búðir, á málverkauppboð - eða kannski á matreiðslunámskeið, danskennslu eða sækja fyrirlestur. Matur og drykkur allan daginn, svo bíður 3ja rétta kvöldverður og glæsileg sýning um kvöldið.

cel_grand_cayman_snorkel_1.jpg

Fimmtudagur 6. mars George Town, Grand Cayman. 
George Town er litrík og leiftrandi borg, þar sem allir ættu að geta upplifað ævintýri við sitt hæfi, hvort sem það er með því að sleppa sleppa fram af sér beislinu í tollfrjálsum verslunum eða sökkva sér í snorkl, leggjast í bátsferðir eða á silkimjúkar sandstrendur, nú eða heilsa upp á viðkunnanlegar
stingskötur við næsta sandrif.

cel_Grand_ Cayman_george_town_white_house_mansion_drinks.jpg

Föstudagur 7. mars. Á siglingu
Síðasta dagsins er notið á skipinu. Hvort sem kosið er að vera úti á dekki í sólinni og láta stjana við sig og skemmta af starfsfólki skipsins eða vera innandyra þar sem margt er um að vera, hvort sem er útsölur á göngugötunni, taka á því í ræktinni , láta stjana við sig í nuddi eða öðru í heilsulindinni, eða bara njóta þessa að vafra um skipið.

 

Laugardagur 8. mars Ft. Lauderdale og Orlando
Celebrity Eclipse leggur að bryggju í Ft. Lauderdale kl. 07:00 og þá er að njóta síðasta morgunverðarins í skipinu. Farið frá borði um kl. 09:00 og ekið sem leið lyggur til Orlando og síðasta nóttin aftur á hóteli í Orlando. Dagsins og kvöldsins notið í Orlando áður en haldið er heim á leið. 

Sunnudagur  9. mars Heimferð.
Morgunverður á Home2 Suites by Hilton Orlando South Park og eftir að tékkað er út er haldið út á flugvöll. Flogið er heim með Icelandair FI 688 og áætluð brottför kl. 18:55 og lending í Keflavík. kl 06:15 að morgni 10. mars.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
100% Vildarpunktasöfnun

Sigling skv. ferðalýsingu

Klefi um borð

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu