Pingdom Check


Auglýsendur og kynningarefni

Auglýsendur geta haft áhrif á kauphegðun farþega í auglýsingamiðlum Icelandair. Yfir 90% af farþegum okkar eru eldri en 25 ára og með góða kaupgetu. Auglýsingin þín getur birst farþegum frá fyrstu heimsókn á heimasíðu Icelandair og þar til gengið er frá borði á áfangastað.

Miðlun fyrir flug

Mikið magn farmiða er selt á vefsíðu Icelandair og því hægt að ná athygli farþega strax við upphaf ferðar.

  • E-miði: Þegar viðskiptavinir hafa bókað flug fá þeir sendan staðfestingarpóst á netfangið sitt, sem inniheldur e-miða. E-miðinn er staðfesting á ferðaáætlun. Þar er tækifæri til að vekja áhuga farþega strax með upplýsingum um áfangastaðinn. Allir rafrænt bókaðir farþegar sem ferðast til, frá eða um Ísland fá e-miðann sendan á netfang við bókun.
  • Áminningarpóstur (Pre-flight email): Áminningarpósturinn er sendur sjö dögum fyrir brottför og er kjörin leið til markaðssetningar á vöru og þjónustu. Pósturinn er sendur á nafn farþega og inniheldur meðal annars upplýsingar um flugið og áfangastaðinn.

Miðlun um borð

Lengd flugferða og nánd farþega við auglýsingamiðlana hefur þau áhrif að farþegar eru móttækilegir og muna frekar auglýsingarnar sem þeir sjá um borð. Það hefur áhrif á kauphegðun þeirra. Hér getur þú kynnt þeir auglýsingamiðla okkar um borð.

  • Afþreyingarkerfi Icelandair: Er afþreyingarkerfi Icelandair útbreiddasta sjónvarpsstöð Íslendinga? Icelandair býður farþegum upp á 150 klukkustundir af skemmtiefni þar sem auglýsendur eru í kjörstöðu til að tengjast farþegum gegnum auglýsingaefni. Þær geta birst farþegum í brottfararkynningunni og þegar valið er að hefja notkun afþreyingarkerfisins. Einnig eru kynningarmyndbönd í „Promos“ og í „Unique Iceland“, sem eru þeir þættir afþreyingarkerfisins sem fá mest áhorf.
  • Höfuðpúðar: Auglýsing sem prentuð er á leðurhlíf á höfuðpúðum er í sjónlínu allra farþega Icelandair meðan á ferðalaginu stendur.

Hér má sjá verðskrá fyrir auglýsingar fyrir brottför og í afþreyingarkerfi.